FG vann "FG-Flens" 2023

Mikið fjör var þegar FG vann
Mikið fjör var þegar FG vann "FG-Flens 2023".

Hinn árlegi FG-Flens(borg) var haldinn í Hafnarfirði (Flens) þann 19.10 og keppt var í ýmsum greinum og var stemmingin gríðarleg.

Tóku kennarar þátt og þykir það alltaf auka við fjörið. Þeir kepptu í skotbolta, en aðrar greinar voru kappát, karfa, hand og fótbolti og borðtennis.

Jafnt var á milli liðanna eftir allar greinar og þurfti því vítaspyrnukeppni til að knýja fram úrslit.

Þar vann FG og fékk því bikarinn góða. Glæsilegt FG!