Fjör færist í Gettu betur

FG keppir á RÚV þann 17.febrúar gegn Tækniskólanum.
FG keppir á RÚV þann 17.febrúar gegn Tækniskólanum.

Það færist fjör í spurningakeppni framhaldskólanna, Gettu betur, en nú er keppnin komin í sjónvarp allra landsmanna, RÚV.

Næsta föstudag mætast tvö hörkulið, MR og Verslunarskóli Íslands. Þar mætast stálin stinn, eins og sagt er.

Föstudaginn 17.febrúar er hins vegar komið að liði FG til að keppa í sjónvarpinu. Þá mætir það liði Tækniskólans, en þetta er keppni í átta liða úrslitum.

Þennan dag verða nemendur í fríi á milli anna, en vorönn hefst í FG þann 22. febrúar.

Tíðindamaður FG.is hitti einn liðsmanna fyrir skömmu þar sem sá var næra sig á jarðhæð skólans. Að hans eigin sögn eru stífar æfingar og góður andi í hópnum. 

Og við segjum bara: ÁFRAM FG!