Geitin er bæði smart og smekkleg.
Það er alltaf gaman að segja frá hlutum sem eru vel gerðir. En þó að nokkuð sé um liðið, verður ritari FG.is að minnast hér á nýjasta eintak Geitarinnar, sem er jú ,,skólablað“ FG. Ritari rakst á eintak um daginn (í annarfríinu) og hreifst strax.
Því að nýjasta Geitin er sú flottasta sem ritari hefur séð. Sjálfur var ritari í ritnefnd í sínum skóla fyrir nokk löngu og gaf nefndin meðal annars út blað sem var bleikt á litinn og þótti á undan sinni samtíð.
Nýja Geitin er (tbl.2) er einfaldlega mjög smart og smekklega unnið blað og er útgefendum sínum til sóma. Forsíðan er til dæmis sérlega vel heppnuð og hefði getað sómt sér á hvaða ,,glanstímariti“ sem er, en það hugtak er notað yfir tímarit sem prentuð eru á glansandi fínan pappír, eins og Geitin. Og þannig pappír er dýr. Ljósmyndavinnan í blaðinu er sérlega flott.
Í stuttu spjalli sögðu þær Gerður Lind Sverrisdóttir og Lilja Dís Gunnarsdóttir (mynd að neðan) að þær hefðu sett mikinn metnað í þetta og að blaðið hefði kostað sitt, eða um 400.000 krónur. ,,En við fengum alveg styrki og svoleiðis á mót,“ sögðu þær. Vetur var þema þessarar Geitar.
Næsta verkefni er svo Lokabókin, eins og þær kölluðu það, en þá verður farið yfir skólaárið í heild sinni. Hún á að koma út í apríl.
FG.is óskar formönnum Geitarinnar, þeim Gerði og Lilju, sem og allri ritstjórninni/aðstandendum Geitarinnar, til hamingju með virkilega flotta Geit! Svona á að gera þetta.
