Gerum okkar, gerum okkar, gerum okkar, gerum okkar besta!

Lið FG ætlar að gera sitt besta í verja málstað sinn gegn MB (f.v. Karma, Andrea, Brynjólfur og Hauk…
Lið FG ætlar að gera sitt besta í verja málstað sinn gegn MB (f.v. Karma, Andrea, Brynjólfur og Haukur)

Sextán liða úrslit í Mælsku og rökræðukeppni framhaldsskólanna á Íslandi (MORFÍS) fara fram um þessar mundir og FG er þar með.

Laugardaginn 7.febrúar fer fram rimma (kappræða/orðaskak) í Urðarbrunni og þar verður ,,kjaftað til síðasta blóðdropa“ – svo við séum pínu dramatísk. Hefjast leikar kl. 16.00.

En það er staðreynd að viðureignir í Morfís-keppnum geta verið mjög harðvítugar og skapað bæði deilur og rifrildi, enda hefur aðeins stormað um Morfís á undanförnum árum.

Lið FG mætir Menntaskólanum í Borgarfirði (MB) og verður umræðuefnið ,,Maður á alltaf að gera sitt besta“ (mjög passandi nú lok annar hér í FG). FG ætlar að tala á móti þessu, en MB með.

Lið FG hefur verið að ,,hita upp“ fyrir þetta að undanförnu og mætti fyrir skömmu liði MR. Samkvæmt heimildum FG.is stóð lið FG vel í hárinu á MR-ingum, en það þýðir að FG veitti MR harða keppni.

Lið FG skipa: Karma Ólafsdóttir, Andrea Sæmundsdóttir, Brynjólfur Aron Jónsson og Haukur Helgi Högnasson.

Áfram FG!