Góð Erasmus-ferð til Lilleström

Nemendur frá FG voru í Erasmus-verkefni dagana 16.-20, janúar síðastliðinn.
Nemendur frá FG voru í Erasmus-verkefni dagana 16.-20, janúar síðastliðinn.

Hópur nemenda, alls tólf, fóru vikuna 16.-20 janúar til Lilleström og Osló í Noregi, til að taka þátt í Erasmus-verkefni, ásamt heimamönnum frá Noregi og hópi frá Spáni. Gistu nemendur hjá norskum fjölskyldum allan tímann.

Verkefnið gengur út á sögu, menningu og þjóðareinkenni landanna þriggja, en þátttakendur frá Spáni koma frá borginn Lugo, sem er á NV-Spáni, í héraðinu Galisíu.

Fóru nemendur í skólann með vinum sínum, en einnig var farið á söfn, víkingamenning könnuð, farið í fjársjóðsleit, á skíði (hvað er norskara?) og fleira skemmtilegt gert. Óhætt er að segja að nemendur með óbókstaflegum hætti ,,drukkið“ í sig norska menningu og þjóðareinkenni á þessum dögum.

Á lokakvöldi voru meðal annars sendiherra Íslands í Osló, ræðismaður Spánar og borgarstjórinn í Lilleström, en um svokallað ,,pálínuboð“ var að ræða, allir komu með mat með sér.

Nemendur frá Íslandi voru með kynningu á landi og þjóð og þá var einnig flutt tónlistaratriði, sem óhætt er að segja að hafi slegið í gegn.

Hópurinn var FG til mikils sóma, en með í för voru Rakel, Hilmar, Sif og Gunnar. Í vor koma svo nemendur frá Noregi og Spáni til Íslands.