Hittingur hjá Hinseginfélagi FG

Hinseginfélag FG hélt ,,Super-Smash-Bros-mót“ (spila og spjallkvöld) í Urðarbrunni miðvikudaginn 13.september síðastliðinn og var mæting ágæt. Pantaðar voru pizzur og nammi var á borðum. Síðan voru spilaðir tölvuleikir á stóra tjaldi Urðarbrunns, sem í raun er álíka stórt og í sumum af minni bíósölum borgarinnar.

Öll eru velkomin í Hinseginfélag FG og er starfsemi félaga sem þessara nauðsynleg á þeim tímum sem við lifum á, en merkjanlegt bakslag er í umræðunni um ýmsa minnihlutahópa. Virðist vera sem fordómar og jafnvel hatur gegn þeim þrífist víða í samfélaginu. Umburðarlyndi virðist eiga undir högg að sækja.

FG er hins vegar skóli sem styður við og talar fyrir fjölbreytileika og er með jafnréttisstefnu með ákveðnum markmiðum í þeim efnum.

Hægt er að hafa samband við Hinseginfélagið til dæmis í gegnum Instagram.