Þegar ritar leit við í Urðarbrunni fyrir skömmu, var verið að gera grind að leikmynd fyrir ,,Ljóska í gegn" - söngleikinn sem leikfélagið Verðandi frumsýnir þann 11.mars á sérstakri nemendasýninu. Lofað er miklu fjöri, mikilli músik og almennri gleði.
Kennsla er hafin á vorönn í FG og samkvæmt dagatali skólans (sem er sniðugt að skoða), þá stendur kennsla til og með föstudagsins 21.maí. Þann 30. maí fer fram brautskráning í FG á vorönn.
Margt er á dagskrá þangað til, fyrir utan námið. Allt er á fullu hjá leikfélaginu Verðandi, sem þann 11.mars frumsýnir söngleikinn ,,Ljóska í gegn“ (e.Legally Blonde) og er þetta sérstök nemendasýning þann daginn. Svo fer söngleikurinn í almennar sýningar.
Imbran er einnig á sínum stað, dagana 11-13 mars og þá er skólastarfið brotið upp með ýmsum atburðum, árshátíð nemenda og fleira.
Páskafrí er svo dagana 28.mars og til 7.apríl, en daginn eftir, þann 8.apríl hefst kennsla á ný eftir páska. Síðan eru fleiri ,,rauðir dagar“, t.d. 1.maí og Uppstigningardagur, en hann er til minningar um himnaför Jesú, sem var jú krossfestur á sínum tíma.
Ritari FG.is hvetur nemendur til þátttöku í félagslífi skólans, það er mikilvægur hluti af skólastarfinu. Einnig til að vera dugleg að læra og helst fá tíu í öllu (broskall).