Samfélagslöggur í heimsókn

Samfélagslöggur kíktu við í FG og spjölluðu við nemendur.
Samfélagslöggur kíktu við í FG og spjölluðu við nemendur.

Það er mikilvægt fyrir samfélagið að eiga góðar löggur og gott fyrir löggurnar að samfélagið sé gott. Samtal milli lögreglu og almennra borgara er líka afar mikilvægt, eða eins og segir á vefsíðu Lögreglunnar eru samfélagslöggur; ,,hugmyndafræði löggæslu sem leggur áherslu á að efla tengslin á milli lögreglu og íbúa."

Þá segir einnig á sömu vefsíðu: ,,Samfélagslögregla heimsækir leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla, félagsmiðstöðvar, fyrirtæki, stofnanir og félög til að miðla upplýsingum um öryggi og forvarnir."

Samfélagslöggur komu einmitt í hemsókn í FG þann 4. mars síðastliðinn og spjölluðu við nemendur um heima og geima. Og eins og sjá má á myndinni var líka skroppið í jóga, sem er bæði gott fyrir löggur og ,,almenna borgara"- þ.e.a.s nemendur FG. Skemmtilegt.

Ritari bendir svo á að hægt er að fylgjast með samfélagslöggunum á Instagram - þær standa sig bara nokkuð vel þar.