Skíðadraumar í Noregi

Góð ferð til Hafjell
Góð ferð til Hafjell

FG fór fyrir skömmu í vel heppnaða skíðaferð til Hafjaell í Noregi, sem er einn vinsælasti skíðastaður landsins.

Eins og sést á meðfylgjandi mynd þá lék veðrið við okkar fólk og samkvæmt áreiðanlegum heimildum gekk ferðin afar vel.

Stóð ferðin yfir dagana 29.janúar til 2.febrúar og fóru þrír starfsmenn skólans með hópnum, sem taldi yfir 60 manns,

Gist var á staðnum og því leikur einn að hoppa á skíðin og renna sér daginn út og inn í frábærum brekkum Hafjell.