Umsóknir um nám á vorönn í FG

Við afgreiðslu umsókna er horft til frammistöðu í framhaldsskóla á haustönn 2026 sem og einkunna úr grunnskóla. Einnig er tekið tillit til skólasóknar. Nemendur sem eru yngri en 18 ára njóta forgangs. Við afgreiðslu umsókna eru eingöngu skoðaðar umsóknir sem eru með FG í fyrsta vali og horft til fjölda nemenda á brautum skólans sem nú stunda nám.

Innritun nemenda fer fram 16. nóvember til 13. desember.

Innritunin er rafræn og fer fram hér. Leiðbeiningar um innritun má fá hér.

Vorönn 2027 í FG hefst 18. febrúar og lýkur með brautskráningu 29. maí. Kennslu lýkur 18. maí. Sjá nánar á skóladagatali FG.

Tekið skal fram að mikill fjöldi nemenda er í skólanum á haustönn 2026 og því eru fá pláss laus fyrir vorönn 2027.

Allar frekari upplýsingar má fá hjá námsráðgjöfum og stjórnendum

Ekki er tekið við umsóknum fyrir nám á miðönn.