Myndlist og stærðfræði renna hér saman.
Fyrir skömmu hönnuðu nemendur í SKÚL3þv05 og STÆR3yá05 tillögu að útilistaverki með notkun stærðfræðilegra ferla undir stjórn Sari Cedergren og Þórunn Bjarkar Sigurbjörnsdóttur, myndlista og stærðfærðikennara.
Nemendurnir hönnuðu þrívítt líkan með hjálp GeoGebra og ýmissa þrívíddarteikniforrita, en líkanið var síðan prentað út í 3D‑prentara.
Áhersla var lögð á notkun stærðfræðilegra ferla, formgerða og reglna í skapandi vinnu. Í framhaldinu smíðuðu þeir einnig líkön með hliðsjón af raunverulegri staðsetningu útilistaverksins.
Hver hópur vann auk þess kynningu á listamanni eða hönnuði sem hefur nýtt stærðfræði á áhrifaríkan hátt í verkum sínum, til að dýpka skilning á samspili listar, rýmis og stærðfræðilegra hugmynda.
Markmiðið var að efla samvinnu þvert á greinar og skapa heildstæða sýn á það hvernig stærðfræði og list geta stutt hvort annað í sameiginlegu verkefni.
