Póstur til nýrra nemenda

Kæri nemandi,

Gott að sjá þig í Fjölbrautaskólanum í Garðabæ.

Upplýsingar um notendanafn, lykilorð og ýmislegt fleira má finna á þessari slóð: Nýr nemandi | Fjölbrautaskólinn í Garðabæ (fg.is)

Ef þú lendir í vandræðum við innskráningu á kerfi skólans, verður kerfisstjóri við þriðjudaginn 20. febrúar kl. 10-12 og miðvikudaginn 21. febrúar frá 13-15 í stofu A-302 til aðstoðar.

Vefur skólans, http://www.fg.is

Í Innu eru upplýsingar um allt sem tengist námi og nemendabókhaldskerfi skólans. Þú skráir þig inn með Rafrænum skilríkjum.

Það er mikilvægt að réttar upplýsingar um netfang og símanúmer þitt sé skráð í Innu því skólinn sendir nemendum ýmsar tilkynningar í tölvupósti og með SMS.

Með kveðju

Villi kerfisstjóri