Fréttir

Kúrekaþema, jííha!

Allskonar ,,þemu“ í klæðaburði hafa verið í gangi í FG þessa vikuna og fimmtudaginn 8.september síðastliðinn var kúrekaþema. Þá voru það kúrekahattar, köflóttar skyrtur og jafnvel kúrekastígvél sem voru málið. Þessir hressu nemar létu ekki sitt eftir liggja og geystust um ganga skólans dressuð sem kúrekar. Þau voru líka alveg til í eina ,,kúrekamynd“
Lesa meira

Dagmar Íris Hafsteinsdóttir fékk hvatningaverðlaun frá Háskóla Íslands

Skólanum barst fyrir skömmu sú ánægjulega frétt að fyrrum nemandi (og dúx) skólans, Dagmar Hafsteinsdóttir, hefði fengið styrk frá sérstökum sjóði Háskóla Íslands. Í tilkynningu frá H.Í. segir meðal annars: ,,Dagmar Íris Hafsteinsdóttir tók nýlega við styrk úr Afreks- og hvatningarsjóði stúdenta Háskóla Íslands. Styrkir eru veittir nýnemum við Háskóla Íslands sem náð hafa framúrskarandi árangri í námi til stúdentsprófs og jafnframt látið til sín taka á öðrum sviðum, svo sem í félagsstörfum í framhaldsskóla eða listum og íþróttum." Þess má geta að Dagmar var einnig í Gettu betur liði FG, sem stóð sig frábærlega í síðustu keppni. Henni er því margt til lista lagt. Óskum Dagmar innilega til hamingju.
Lesa meira

FG fékk vatnslitamynd að gjöf

Það eru til allskonar félög á Íslandi og eitt þeirra er Vatnslitafélag Íslands. Í sumar var haldið námskeið á vegum þess í FG og gestur þess var spænskur listamaður að nafni Vicente Garcia Fuentes. FG lánaði félaginu aðstöðu til sköpunarinnar og fékk að launum vatnslitamynd frá félaginu að gjöf fyrir skömmu. Það var Derek Karl Mundell, formaður Vatnslitafélags Íslands, sem færði skólameistara myndina. Þess má svo geta að einn af fyrrum kennurum skólans, Margrét Kolka Haraldsdóttir, er afburða vatsnlitamálari og hefur meðal annars sýnt verk sín opinberlega. Svo er hún líka á Instagram, hver er þar ekki, sem og veraldarvefnum.
Lesa meira

Skapað í blíðunni

Nemendur hjá Jóhönnu Margréti Tryggvadóttur myndlistarkennara nýtt sér góða veðrið þann 23.ágúst til sköpunar. Aðstæður gerast ekki betri til útikennslu, enda svæðið í algeru skjóli frá norðanáttinni. Bara snilld.
Lesa meira

Ný önn, nýir nemendur, ný gangstétt og inngangur

Haustönn 2022 er hafin af fullum krafti í FG og nú er ekkert kóvidvesen eða álíka leiðindi til að pirra fólk. Skólaupphafið er því fullkomlega eðlilegt og nýnemar hafa hrúgast í skólann. Glöggir nemendur hafa sjálfsagt tekið eftir breytingum, en í sumar voru iðnaðarmenn á ferð um FG og voru að lappa upp á ýmislegt eins og sagt er. Komin er ný gangstétt fyrir framan skólann, en sú gamla var orðin heldur lúin. Anddyri skólans hefur einnig tekið breytingum, skápar hafa verið fluttir og nýtt rými til samveru verið skapað. Þá er félagslíf skólans væntanlega að fara á fullt og heyrst hefur af nýnemaballi í lok ágúst. Það er alltaf mikið stuð, enda eiga menntaskólaárin að vera stuð, þannig er það bara.
Lesa meira

Upphaf haustannar 2022

Kæru nemendur - velkomin í skólann á haustönn 2022 Opnað verður fyrir stundatöflur ekki síðar en þriðjudaginn 16. ágúst. Töflubreytingar verða eingöngu á rafrænu formi og er hægt að sækja um breytingar frá þeim tíma sem stundatöflur eru opnar.
Lesa meira

Fimm af sex í stjórn NFFG kvöddu

Það verður mikil endurnýjun í stjórn Nemendafélags FG (NFFG) í haust, en laugardaginn 28.maí kvöddu fimm af sex stjórnaliðum FG skólann. Þetta eru; Kristófer Breki Halldórsson, Maren Júlía Magnúsdóttir, Dagmar Íris Hafsteinsdóttir, Helgi Már Herbertsson og Kjartan Leifur Sigurðsson. Dagmar og Kjartan voru einnig í Gettu betur-liði skólans og þá varð Dagmar einnig dúx á vorönn. Far vel öll!
Lesa meira

Fengu gullmerki FG fyrir vel unnin störf

Við brautskráningarathöfn laugardaginn 28.maí síðastliðinn voru fjórir starfsmenn FG kvaddir eftir langa og dygga þjónustu og sæmdir gullmerki skólans fyrir vikið. Þetta voru þær; Sigríður Sigurðardóttir, myndlistarkennari, Salvör Jósefsdóttir, skólaliði, Ágústa Axelsdóttir, enskukennari og Anna Jeeves, einnig enskukennari. Bæði Sigríður og Ágústa hafa margra áratuga kennslureynslu í FG. Þeim öllum eru þökkuð vel unnin störf og óskað gæfu og gengis.
Lesa meira

Brautskráning í blíðunni - Dagmar Íris Dúx

Fríður hópur nemenda FG var brautskráður í blíðskaparveðri laugardaginn 28.maí, að viðstöddu fjölmenni. Alls voru 117 nemendur brautskráðir, þarf af voru 111 sem brautskráðust með stúdentspróf, flestir af viðskiptabraut, eða 24 talsins. Dúx að þessu sinni varð Dagmar Íris Hafsteinsdóttir, með rúmlega 9 í meðaleinkunn. Sérstök samfélagsverðlaun fengu Oddur Helgi Ólafsson og Andrea Líf Rúnarsdóttir, fyrir að vera skólanum til sóma á allan hátt og stuðla að góðum anda innan hans með hegðun, framkomu og viðmóti. Oddur stjórnaði einnig samsöng á sænska laginu ,,Vem kan segla för utan vind“ og spilaði þar á harmónikku, ásamt Ylfu Ösp leiklistarkennara. Þá vakti tónlistaratriði í upphafi athygli, en þá sungu þær Mirra Björt Hjartardóttir og Tinna Margrét Hrafnkelsdóttir lagið ,,When I Kissed the Teacher“ eftir þá Björn Ulvaeus og Benny Andresson, úr hinni goðsagnakenndu sveit (einnig frá Svíþjóð), ABBA. Fjöldi annarra nemenda fékk verðlaun fyrir námsárangur og annað. Það var svo Sigrún Jóhannsdóttir sem flutti skemmtilega ræðu nýstúdents.
Lesa meira